Um fyrirtækið

Promens Dalvík er meðal þekktustu útflutningsflutningsfyrirtækja Íslendinga. Upphaf fyrirtækisins má rekja til þess er Sæplast hf. var stofnað árið 1984 á Dalvík. Allar götur síðan hefur framleiðsla á hverfisteyptum einangruðum umbúðarkerum verið þungamiðjan í framleiðslu verksmiðjunnar á Dalvík og fyrirtækið verið í farabroddi í heiminum í hönnun og framleiðslu á þessum vörum. Í upphafi þjónaði fyrirtækið fyrst og fremst viðskiptavinum sjávarútvegi en síðan hafa aðrar greinar matvælaiðnaðar í auknum mæli tekið framleiðsluvörurnar í þjónustu sína.

Frá 1. febrúar 2007 hefur verksmiðjan á Dalvík borið nafn móðurfélags síns og heitir frá þeim tíma Promens Dalvík ehf. Sæplast er áfram vörumerki framleiðslunnar, tákn um vöruvöndun og áræðanleika. Óhætt er að segja að Sæplastkerin megi nota undir allar tegundir matvæla sem framleiddar eru í veröldinni.

Auk kera framleiðir Promens Dalvík keralok og vörubretti og allar þessar vörur eru ýmist einangraðar með ppolyurethane-efni (PUR) eða polyethelene- (PE). Auk þess er framleiðsla á byggingarvörum fyrir innanlandsmarkað snar þáttur í starfsemi verksmiðjunnar á Dalvík og hefur svo verið um árabil. Þar er um að ræða framleiðslu á rotþróm, búnaði til vatnsveitna, tönkum, fráveitubrunnum, skiljum og fleiru.

Systurverksmiðja Promens Dalvík hefur verið í starfrækt í Álasundi í Noregi um nokkurra ára skeið og framleiða verksmiðjurnar í sumum tilfellum sömu vörutegundir þó munur sé á vörulínum þeirra á öðrum sviðum. Verksmiðjurnar þjónusta heimamarkaði í löndunum tveimur en starfa náið saman bæði í framleiðsluþróun, markaðssetningu og útflutningi.
Söludeild fyrir innanlandsframleiðslu og útfluning er starfrækt á Dalvík sem og þróunarsetur þar sem unnið er að nýsköpunarverkefnum og framþróun framleiðsluvara fyrirtækisins.
Hjá Promens Dalvík starfa að jafnaði 40-50 manns og er Daði Valdimarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Promens Dalvík er dótturfyrirtæki Promens hf. – stærsta hverfisteypufyrirtæki heims. Promens starfrækir 65 verksmiðjur í í 24 löndum; Evrópu; Norður Ameríku og Asíu. Umboðs- og dreifingaraðilar eru síðan að störfum um allan heim.

Þegar málið snýst um að viðhalda ferskleika þinnar framleiðslu þá er Sæplast vörumerkið sem þú getur reitt þig á.

 

PROMENS DALVÍK
kt. 560600 2240
Gunnarsbraut 12
620 Dalvík
moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning